Þjónusta
Verkefnastýring
Rafráð tekur að sér verkefnastjórn á ýmsum verkefnum bæði stórum og smáum. Verkefnastjórn er allt frá hugmynd, undirbúning, framkvæmd, skipulagningu, áætlanagerð og eftirlit með verkefnum. Útvega verktaka halda utan um og stýra framkvæmd og fylgjast með verkinu.
Rafteikningar
Rafráð hefur yfirgripsmikla reynslu í verklegum framkvæmdum sérstaklega tengdum rafmagni. Áralöng þekking og reynsla við lagningu og rekstur rafdreifikerfa ásamt vinnu á lág- og háspennusviði. Rafráð leitast eftir því að finna nýjar og hagkvæmar lausnir viðskiptavinum til hagsbóta.
Byggingarstjórn (flokkur 1)
Rafráð getur tekið að sér byggingarstjórn í flokki 1, Byggingarstjóri er fulltrúi eiganda og starfar í hans umboði. Byggingarstjóri sér um að teikningum og reglugerðum sé fylgt á verkstað. Byggingarstjóra I er heimilt að stjórna framkvæmdum við nýbyggingu, viðhald, breytingu, endurbyggingu og niðurrif mannvirkja sem eru allt að 2.000 m² að flatarmáli og mest 16 m að hæð.
Rafteikningar
Rafráð hefur löggild hönnunarréttindi til þess að skila inn raflagnateikningum.
Umhverfi og öryggi
Öryggismál
Rafráð ehf hefur það markmið í öryggis- og heilbrigðismálum að skapa slysalausan vinnustað þar sem enginn starfsmaður, verktaki eða almenningur bíður heilsutjón vegna starfseminnar.
Allir sem starfa fyrir Rafráð ehf. eru ábyrgir fyrir eigin öryggi, eru talsmenn aukins öryggis síns og annarra samstarfsmanna sinna og leitast við að koma auga á, meta og stjórna áhættum í vinnuumhverfinu. Ekkert verk er svo mikilvægt að fórna megi öryggi fólks við framkvæmd þess.
Öryggis-, heilsu- og vinnuumhverfismál eru þannig óaðskiljanlegur hluti af allri starfseminni.
Umhverfismál
Rafráð starfar í sátt við umhverfið og leggur sitt af mörkum til samfélagsins. Með því að vinna verkefni þannig að þau séu endingar góð bæði í efnis vali, nýtingar- og þróunarmöguleikum. Leitast er við að raska ekki umhverfi að óþörfu, gerist þess þörf er því skilað í sama eða betra ástandi en áður. Rafráð leggur sitt af mörgum til þess að stuðla að orkuskiptum eins og kostur er.
Umhverfisstefna fyrirtækisins skal endurskoðuð reglulega með umbætur í umhverfismálum í huga.
NÝTT!
Veituhús
Hús fyrir tveggja spenna dreifistöð undir 15fm og því einungis tilkynningarskilt fyrir byggingaráform.

Um mig
Ég, Páll Þór Vilhelmsson er stofnandi og eigandi Rafráðs ehf. Ég er menntaður rafvirki frá Tækniskólanum og Raf- og rekstrariðnfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að vera byggingarstjóri, hönnuður og löggiltur rafvirkjameistari.
Mikið af minni reynslu kemur frá Orkuveitu Reykjavíkur en þar starfaði ég í 15 ár á ýmsum sviðum. Má þar nefna rafvirki og á bakvöktum í veitukerfi Veitna, hönnuður, aðgerðarstjórn og vaktmaður í virkjunum ON, verkstjóri rafvirkja veitna og sem verkefnastjóri.
Ég hef einnig tekið að mér verkefni samhlið starfi hjá Veitum, sem byggingarstjóri á nýbyggingum, rafvirkja meistari og hönnun á raflagnateikningum.